Hrein náttúra - hreinar afurðir
Miðvikudagur, 15. febrúar 2012

Hafðu það einfalt með Ora

Ora fiskbollur í karrísósu.Stundum er gott að geta gripið með sér eitthvað einfalt úr búðinni sem er fljótlegt að elda hafi maður ekki mikinn tíma. Sé maður í þessum sporum er tilvalið að grípa með sér Ora fiskbúðing eða Ora fiskbollur í karrísósu en bæði er fljótlegt að elda þá rétti og auðvelt og því hægt að snara fram ljúffengri máltíð á örskotsstundu. Það er hægt að framreiða fiskbúðinginn á marga vegu.

 
Mánudagur, 16. janúar 2012

Afurðir Ora alltaf fyrsta flokks - ekkert iðnaðarsalt

Um fátt hefur verið rætt jafnmikið undanfarna daga og notkun iðnaðarsalts í matvörum eftir að Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur bárust fregnir af slíkri notkun frá Matvælastofnun. Notkun á iðnaðarsalti til manneldis er óheimil samkvæmt matvælalöggjöfinni og líta neytendur eðlilega málið alvarlegum augum líkt og starfsfólk Ora.

 


Síldaruppskriftir
Ora síld á veisluborðið
Síld er góður kostur á veisluborðið

Síldin er silfur hafsins. Í henni felast mikil verðmæti og hún er silfruð að lit. Síldartorfa á ferð er tilkomumikil sjón. Síldarframleiðsla Ora hófst árið 1989 og Ora Lúxussíld sló í gegn frá fyrsta degi. Síldin er afar holl og ljúffeng, og má matreiða hana á marga vegu. Íslendingar þekkja hana helst marineraða ofan á rúgbrauð, en hana má líka steikja í flökum, eins og gert er víða á Norðurlöndunum. Hér eru nokkrar gómsætar uppskriftir að hefðbundnum síldarréttum.

Túnfiskuppskriftir
Túnfiskur er tilvalin í hvers konar salöt og heilsurétti

Túnfiskur er ljúffengur og fitulítill, en stútfullur af næringar- og bætiefnum svo sem omega-3 fitusýrum, próteini og A, D og E- vitamínum. Ora túnfiskurinn er fyrsta flokks enda er það stefna fyrirtækisins að færa Íslendingum aðeins gæðahráefni. Túnfiskur er ódýr og gómsætur, og skemmtilegt hráefni í eldamennskuna. Hér eru nokkrar fyrsta flokks túnfiskuppskriftir.

Grænmetisuppskriftir
Möguleikarnir eru óendanlegir með grænmetinu, sveppunum og baununum frá Ora

Grænmetisneysla er af hinu góða, svo mikið vitum við. Oft er þægilegt að geta gripið tilbúið grænmeti sem búið er að sjóða til að nota í fljótlega rétti. Ora grænmeti er hágæðavara á frábæru verði. Sveppirnir og sperglarnir, gulræturnar, blandað grænmeti svo ekki sé talað um hinar víðfrægu grænu baunir. Við höfum tekið hér saman nokkrar uppskriftir þar sem þessir heimilisvinir koma við sögu.

Fiskuppskriftir
Ora Fiskbollurnar bjóða uppá gamaldags og framandi matreiðslu

Fiskbollurnar og -búðingurinn frá Ora er klassík. Margir eiga góðar minningar um fiskbollur í bleikri eða karrý. Hágæðahráefni er notað við framleiðsluna en engin rotvarnarefni, bindiefni, glútein eða egg. Ora fiskbollur eru próteinríkar, innihalda einungis 0,3% fitu og ekkert MSG. Kíktu hér á fjölbreyttar fiskbolluuppskriftir, bæði klassískar og framandi.


Vara mánaðarins

Pestó

Pestó grænt og Pestó rautt frá Ora
Rautt og grænt pestó frá Ora

Pestó er samheiti yfir nokkrar gerðir af mauki úr jurtaríkinu þar sem t.d. tómatar, basilíkum og fleiri kryddjurtir, hvítlaukur, hnetur og fræ af ýmsu tagi og osti að ógleymdri ólífuolíunni koma við sögu. Pestó eins og við þekkjum það er ítalskt að uppruna en sambærilegt jurtamauk er algengt í matargerð á Spáni, Grikklandi og víðar við Miðjarðarhafið

Lestu meira ...